anna skvísindakona

miðvikudagur, 31. mars 2004

Ferðasagan:

Við byrjuðum á að hitta Gummajóh & Hlyn í fríhöfninni á barnum sem maður þarf að borga fyrir brennivínið. Svo þegar þeir voru farnir fórum við inní Business Lounge & fórum á wresgetið- fríkeypis af því að þannig konur erum við, ehehe. Í flugvélinni lentum við á einhverjum fávita & kellingunni hans, sem héldu að þau gætu rifist við okkur en þegar við vorum búnar að rífast við þau í smástund föttuðu þau hvað þau áttu í höggi við & létu okkur í friði. Eins gott fyrir þau, af því að annars hefðum við örugglega buffað þau. Ég varð líka ástfangin í flugvélinni af einhverjum gaur, en hann svaf allan tímann. Ég held samt að hann hafi veri að dreyma mig. Pottþétt.
Þegar við komum til Köben fengum við okkur kokteila á Peder Oxe & hittum Herstein & svo fórum við ? Studentahúsið & hittum Hauk. Við gleymdum okkur dáldið & þurftum að hlaupa á Belle&Sebastian svo að við myndum ekki missa af byrjuninni. Tónleikarnir voru æði & nýju lögin voru bara snilld!! Ég var svo þreytt eftir tónleikana að ég beilaði á deiti- úff, eftir á að hyggja, hversu þreyttur getur maður eiginlega verið???!!
Við kíktum í heimsókn til Hilmu klikk & Niels (afa hennar Morðönnulindar) & þau voru heví ánægð að sjá okkur. Hins vegar þegar við kíktum niður til Lene var hún hætt að vinna þarna & einhver nýnasisti kominn í staðinn fyrir hana þannig að við nenntum nú ekki að sækja um vinnu þar- glætan að ég nenni að þurfa að vinna í vinnunni í allt sumar! æji, ég nenni ekki að skrifa meira, þeir sem vilja heyra ferðasöguna hringja bara í mig eða kíkja í heimsókn.

Skál fyrir:
* Pókípop fyrir að vera kyntröll.
* Vinkonu okkar á Peder Oxe sem gaf okkur kokteil. Hún er greinilega faktor í frítt-sprútt-karmanu okkar.
* Hauki fyrir gufupartýið & að leyfa okkur að gista á laugardeginum.
* þjónninn okkar á Rio Bravo fyrir að meika það að við förum alltaf á trúnó þegar hann er að vinna.
* Martin fyrir skjót viðbrögð & gott handbragð. & hreinlega bara fyrir að haga sér eins & maður en ekki KELLING!
* þýsku píunni á ganginum hans Hauks fyrir að reyna svona grimmt við hann.
* Áttunni á Underground fyrir skemmtilegt flirt & af því að við vorum ástfangin.
* þristinum á Underground fyrir að vera sökker.
* Vinalega hryðjuverkamanninum sem leyfði okkur að syngja fyrir sig.

Bitch slap fá:
* Hyskið sem sat fyrir aftan okkur í flugvélinni.
* Stevens fyrir að vera klikkhaus & skvetta á okkur vatni & ógna okkur með hníf
* Thomas fyrir að vera búinn að hremma gamla símanúmerið mitt. Hann fékk sko ekki frið um helgina, moahaha
* Teknótröllið. Segi ekki meir.

-Anna Lind

anna skvísindakona @ 13:08 |

föstudagur, 19. mars 2004

Váv, ég er að verða búin með alveg heví vinnutörn, þannig að mar getur bara farið að slaka á & skreppa til útlanda. Ég var að byrja á finnskunámskeiði & það er heví gaman- Hyvää päivää, mita kuuluu? Kukka sina olet?
Svo er ég að binda vonir við að vondulagakeppni Dauðaspaðans verði 25. marz. Haukur & Óli væru sætustu strákar í heimi ef þeir myndu halda hana þá.

Af því að það er föstudagur, þá verð ég að skála.

Skál fyrir:
* Braga í Leiksport fyrir að gefa mér bikiní
* Naju fyrir að hjálpa mér með sleikjubréfið til KU
* Læknó fyrir að endurgreiða próftökugjöldin
* Daða af því að hann er svo sætur með stutt hár
* Borgarholtsskóla fyrir að vinna MR plebbana í Gettu Betur. Ég vissi að mestu töffararnir myndu á endanum vinna!

Dóp vikunnar að þessu sinni er efidrín, löglegt á Spáni :-)

115...
-Anna Lind

anna skvísindakona @ 15:47 |

fimmtudagur, 18. mars 2004

Ohmyword.. ég var að komast að því að súkkulaði núllar út franskar kartöflur !!
fyrir þá sem hafa áhuga á vísindunum bakvið það að þá myndast oft vondar stakeindir þegar maður steikir franskar sérstaklega þegar olían er notuð aftur og aftur og aftur.. og andoxunarefnin í súkkulaði eyðir þeim.
Made my day, vonandi ykkar líka :-)

-raggaló

anna skvísindakona @ 16:22 |

mánudagur, 15. mars 2004

Það er eiginlega ekki hægt að vera íþróttamaður & róni á sama tíma. Harðsperrur & þynnka fara hræðilega saman. Svo geta íþróttamenn bara hugsað um eitt í einu. Þannig að þetta gengur hvort sem er ekki upp.

-Anna

anna skvísindakona @ 16:42 |

þriðjudagur, 9. mars 2004

Djövusishelvítsandskotansmoðerfokkinasshole!!!!

anna skvísindakona @ 18:09 |

fimmtudagur, 4. mars 2004

ooo... ég er svo mikill endemis sauður alltaf hreint.. er búin að læsa bílinn minn inn í bílskúr með því að gleyma hurðaropnaranum inn í­ honum, eyðileggja hurðaropnarann hennar mömmu með því að gleyma honum í polli og týna lyklunum að hliðarhurðinni. það er engin leið inn !! mér væri nokk sama ef málin stæðu ekki þannig að bæði jeppinn og mazdan eru orðin bensí­nlaus og ég á fullt af bensíni á mínum bíl en engan pening.

Árshátíð THÍ í kvöld, partý hjá Línu fyrst, ætla að kíkja í partý þangað en beila á árshátíðinni, það er ekki alveg ég að fara á Broadway á háskólaball. Svo er blaðasnápapartý í bænum sem lofar góðu :-)

ég held bara að þetta bensínleysi og bílaleysi leiði til eins.. drykkju !


-Sauðurinn

anna skvísindakona @ 17:27 |

þriðjudagur, 2. mars 2004

Íhíhíhí.....
Ég var vakin af myndarlegum Dana. Langt síðan það gerðist síðast
:-D

Owrætowrætowrætowrætowrætowræt.......
-Anna

anna skvísindakona @ 11:28 |

mánudagur, 1. mars 2004

Shame on you ef ég fer á skrall einusinni, shame on me ef ég fer á skrall tvisvar!

Aftur óvart, datt ég íða á laugardaginn. Það var orðið ljóst að snyrtibuddan fyndist ekki nema ég yrði jafn full & ég var þegar hún týndist. & viti menn, hún fannst! (Sorry Geir fyrir að hafa sakað þig um að hafa tekið hana í misgripum)
Eftir að hafa drukkið rauðvínsÁMU með matnum vorum ég, Raggaló & mamma í ræsinu. Mamma, verandi fín frú eins & hún er fór bara á smá trúnó & slúttaði svo en ég & Raggaló vorum nú ekki í þeim pælingum að fara að sóa fullkomnlega lögmætri ölvun. Afleiðing: Fyllerí & partý
Dóp vikunnar er alveg þokkalega Beta Lean. Maður er bara eins & nýbónaður, ahaha

Skvísindi: Þú veist að partýið þitt er success þegar þú þarft að ryksuga upp glösin í stað þess að vaska þau upp

-Anna

anna skvísindakona @ 16:28 |