Í gær fór ég í klippingu & það ekkert smáræði. Í dag er ég ekki lengur með Lady-Godiva-sítt hár, heldur bara með millisítt. Finnst ég vera að drepast svo úr meðalmennsku að það liggur við að ég fái mér flíspeysu & ógeðis Marimekko tösku, éti pulsu & skáli í Sex on the beach.
anna skvísindakona @ 22:10 |
sunnudagur, 18. maí 2008
Yfirlýsing frá Önnu skvísindakonu:
Kæru lesendur. Ég tel það skyldu mína að tilkynna að ég keypti mér ekki kjól fyrir rannsóknardaga eins & til stóð, heldur pils. Það er mjög fabulous & er í stærð 10. Ég hef enn ekki fundið skyrtu sem passar við, en í ljósi þess að viðfangsefni fyrirlestursins eru brjóst, þá ætti það ekki að koma að sök.
Virðingarfyllst
Anna skvísindakona
anna skvísindakona @ 17:32 |
fimmtudagur, 1. maí 2008
Djöfull skal ég aldrei lesa Flugdrekahlauparann eða nokkra viðlíka bók.
Frekar drepst ég.
anna skvísindakona @ 00:15 |