anna skvísindakona

miðvikudagur, 29. september 2004

Þórunn sagði mér að hún hefði lesið á einhverri áreiðanlegri gæðasíðu á netinu að lofsteinn hefði átt að klessa á jörðina kl. 8.37 í morgun. Það varð ekkert úr því. Er ég þá búin að vera á extasí í 2 daga til einskis?

P.s. Þvílík lágmenning hér á ferð! Hvaða brandarakallar eru þetta?

-Anna

anna skvísindakona @ 20:14 |

föstudagur, 24. september 2004

Opinberi Skítalistinn
Draugaskítur: Sú tegund þar sem þú finnur skít koma en það er enginn skítur klósettinu.
Hreinn skítur: Þar sem þú skítur honum, sérð hann, enn það er engin skítur á pappírnum. Blautur skítur: Þar sem þú skeinir þér að minnsta kosti 90 sinnum og þér finnst enn þá eins og það sé óskeint svo að þú neyðist til þess að setja smá pappír á milli rassgatsins og brókanna svo maður skemmi ekki buxurnar sínar.
Seinni öldu skítur: Þessi gerist þegar maður er búin að skíta og er búin að hysja brækurnar upp að hnjám þegar maður gerir sér grein fyrir því að maður þarf að skíta meira.
Sprengja-æð-í-hausnum skítur: Þar sem maður hefur svo mikið fyrir því að kreista skítinn út að maður fær bókstaflega heilblóðfall við það.
Gaui litli skítur: Þú skítur svo mikið að þú tapar 15 kílóum.
Drumbaskítur: Skítur sem er svo stór að þú ert hræddur við að sturta honum án þess að vera búinn að búta hann niður í minni einingar með klósettburstanum.
Loftfylltur skítur: Hann er hávær, allir nálægir eru flissandi.
Rónaskítur: Maður skítur þessum morguninn eftir að langa drykkjunótt. Helstu einkenni hans eru rákirnar á botni klósettskálarinnar.
Maís skítur: Skýrir sig sjálfur.
Helv… ég vildi að ég gæti skitið skítur: Þannig skítur að þig langar til að skíta en það eina sem þú gerir er að sitja á klósettinu, aðþrengdur, og rekur bara nokkrum sinnum við.
Mænustungu skítur: Það er svo sárt að skíta honum að þú gætir svarið fyrir að hann færi þversum út.
Blautkinna skítur (Kraft dritið): Skítur sem losnar svo hratt úr rassgatinu að rasskinnarnar rennblotna vegna gusugangs.
Vökvakenndur skítur: Þegar gulbrúnn vökvi spýtist og slettist út um alla klósettskálina
Mexicanafæðis skítur: Hann lyktar svo illa að það verður að lýsa herbergið óíbúðarhæft. Yfirstéttarskítur: Þeir sem halda að skíturinn þeirra ilmi ekki.
Sjómannaskítur: Hann gerist þegar þú ert á almenningssalerni , það bíða tvær manneskjur eftir því að komast að; þú skítur og sturtar tvisvar sinnum en fjöldi gólfboltastærðar stykki fljóta enn á yfirborðinu.
Launsátursskítur: Þessi á sér aldrei stað heima fyrir, heldur í veislu eða þegar þú ert að spila gólf. Er árangur þess að reyna að reka “bara lítið” við, en endar með buxnachilí og þú neyðist til þess að ganga hjólbeinóttur það sem eftir er dags

Góða helgi
-Eva

anna skvísindakona @ 13:26 |

miðvikudagur, 22. september 2004

Ég & Mangs fórum á náttúrugripasafnið í gær & það var reyndar dáldið leiðinlegt. Nema auðvitað hjá okkur. Við sáum ógislega hvíta risakónguló & ég er búin að vera með hana á heilanum síðan þá. Bððððööööö...

Skál fyrir
* Stúdentakjallaranum.
* Indælu skrifstofudömunni á læknó. Þangað til annað kemur í ljós er hún sólargeislinn minn.
* Strætó fyrir að vera fríkeypis í dag.
* Sætu tannlæknastrákunum sem ég sá á kaffistofunni áðan. Þeir mega gjarnan bjóða mér út ef þeir lesa þetta. Bara einn í einu samt.

Hvort segir maður orkedíur eða orkídeur?

-Anna

anna skvísindakona @ 15:42 |

föstudagur, 17. september 2004

Ég var að eyða 5000kalli í að láta tannlækninn minn segja mér að það sé ekkert að tönnunum í mér. Fyrir sömu upphæð hefði ég getað látið símahóru segja mér það sama 600 sinnum. Ég er greinilega engin bissnisskona.

Hjúkket samt að ég var ekki með neinar holur!

-Anna Lind

anna skvísindakona @ 15:10 |

fimmtudagur, 16. september 2004

Gvuð, ég er alveg harmi slegin yfir þessum tíðindum frá Danmörku:
Jóakim & Alexandra ætla að skilja!

Ætli það sé af því að hún er nýbúi?

-Anna skvísindakona

anna skvísindakona @ 17:19 |

miðvikudagur, 8. september 2004

Dsjí, ætli kennarinn sem ég dúndraði útí Køben í sumar hafi nokkuð verið kennarinn minn í lífænni? Ég skil ekkert í hvernig ég náði þessu... Hann var allavega ekkert líkur honum. Eníhú, skál fyrir honum!

-Anna

anna skvísindakona @ 13:38 |

fimmtudagur, 2. september 2004

Af hverju tharf raudhært fólk alltaf ad vera ad metast? Djövusis lid! (nema Hlynur audvitad)

-Anna

anna skvísindakona @ 18:26 |