Af því að ég er svo mikil glæsipía þessa dagana, þá kemst ég upp með að vera með aumingjalegan húmor & ætla því með góðri samvisku að segja fimmaur dagsins:
Orri: "Vinur minn er geðveikur skeitari...."
Ég: "Hvað, skeit hann á sig?"
Jahérna, það er kviknað í mér!
-Anna Lind
Slæmu fréttirnar eru þær að mig & Þórunni vantar nýja íbúð, það er verið að selja glæsiíbúðina okkar. Hafið því augu & eyru opin fyrir annarri glæsiíbúð handa okkur. Sá sem reddar okkur fær verðlaun.
Er komið úr tísku að commenta?
-Anna Lind
Ég er búin með ógeðisverkefni annarinnar, þarf ekki að mæta fyrr en eftir hádegi á morgun & er í fríi á föstudaginn. Hvar endar þessi taumlausa gleði?
Þokkalega farin í Smáralind að eyða pening.
-Anna Lind
Ég held að þegar maður fer svona vel af stað, þá verði aukaáramótaheit sett & það er að brjóta þau öll. Hmmmm.... sem er paradox. En ég ætla samt.
-Anna Lind