* Nýjum skóm fyrir haustið. Ég keypti mér geggjaða skó & sá þá svo í septembervogue. Trés chic!
anna skvísindakona | |
sunnudagur, 24. ágúst 2008
Á húsfundi í vikunni ætla ég að leggja það til að nágrannar mínir hætti að tuða allan daginn um nýjar bílskúrshurðar & að í staðinn fáum við einhvern til að gera töff pallíettugraffíti á gaflinn á blokkinni. Jafnvel á svalirnar líka, það er löngu kominn tími á þær. Svo ætla ég að leggja til við skrifstofu læknadeildar að í staðinn fyrir þessa endalausu medicinfyrirlestra á föstudögum, fáum við að fara ókeypis í baðstofuna í Laugum & svo í vínsmökkun. Að lokum ætla ég að leggja til að þeir sem segja "miðað við höfðatölu" í þessari viku verði lagðir í eyði. Rosa flottur árangur & allt það, en geddðefokk overit, handbolti er innisport & þess vegna geta Íslendingar eitthvað í honum. Það væri samt töff að nota tækifærið & koma silfri í tísku. Skvísindakonan mælir með: * Bláberjum. Þau eru soooo in this season. Út á ísinn, í salatið, í sósur & í marineringu. Ég virðist ekki geta tönnlast á því nógu oft hvað ber eru holl & full af andoxunarefnum.
* Nýjum skóm fyrir haustið. Ég keypti mér geggjaða skó & sá þá svo í septembervogue. Trés chic!
miðvikudagur, 20. ágúst 2008
miðvikudagur, 13. ágúst 2008
Einusinni þekkti ég stelpu sem var algjör ólátabelgur, borðaði ekkert nema bara mjög óhollan mat, fór seint í háttinn, skrópaði í skólanum, drakk eins & svín & reykti meiraðsegja sígarettur. Hún átti það líka stundum til að stela húsgögnum úr stofnunum & fyrirtæknum- en aldrei frá fólki samt. Um helgar fór hún í villt & tryllt partý þar sem hún gat með einhverjum skrýtnum töfraorðum gabbað alla í partýinu úr fötunum, dansaði uppá borðum á Kaffibarnum, fór á trúnó með skvísuvinkonum sínum & staulaðist svo heim úr eftirpartýjum snemma á morgnanna með maskara út á kinn, stoppaði þá jafnan í bakaríinu ef það var ekki pakkfullt af einhverjum A-manneskjum. Það villtasta sem þessi stelpa gerði í síðustu viku var að fara niðrí sólarvörn nr. 12 þegar hún var stödd á Spáni. Nýlega fékk hún meirað segja móral eftir að hafa gefið einhverri helvítis belju fokkjúmerki í umferðinni. Er þetta framför eða afturför? Maður spyr sig...
|
|
|